totatutta.bloggar.is
Heima á ÍslandiTútta
Jæja þá fer allt að komast í fastar skorður hérna HEIMA á Íslandi :)
Við erum flutt inn í hús sem við tókum á leigu í Holtagerði í Kópavogi og erum bara ca. 20 skrefum frá Kársnesskóla, gamla grunnskólanum mínum. Börnin byrja í honum í lok ágúst og Hildur Brynja fer á Kópastein á sama tíma. Gámurinn kom síðastliðinn miðvikudag og er dótið smám saman að rata á rétta staði.
Mánuðurinn sem ég var ein á Íslandi leið bara býsna hratt enda nóg að gera í vinnunni og í húsnæðisleit. Jóa gekk vel að skila af sér húsnæðinu í Danmörku ásamt því að kveðja alla og sjá um börnin. Mikið afskaplega var ég fegin að fá þau heim, það er frekar innantómt líf að vera ekki með fjölskylduna hjá sér.
Staðan núna er þannig að Jói er á fullu í fjarnáminu frá Bifröst en því lýkur þann 7.ágúst. Ég er á fullu í vinnu og er að fara inn í mikið álagstímabil sem stendur yfir ca. næsta mánuðinn. Heiðrún og Sigurður Ragnar eru á sund og leikjanámskeiði þessa vikuna og Hildur Brynja eyðir deginum á gæsluróló. Næstu vikur verða svo pússluspil þar sem við Jói skiptum deginum á milli okkar í lærdómi og vinnu og reynum að hafa ofan af fyrir börnunum þangað til skólinn/leikskólinn byrjar.
En já, allt gott að frétta og allir fjölskyldumeðlimir gríðarlega ánægðir með að vera komnir heim til Íslands. Ég veit ekki alveg hvað verður um þetta blogg - sé til hvort ég nenni að halda lífi í því nú þegar við erum komin heim :)
Yfir og út!
Þórunn
Undanfarnar tvær vikur.....Tútta
....hafa verið ansi viðburðarmiklar í lífi fjölskyldunnar. Ég fór í ansi óvænta Íslandsferð með eins dags fyrirvara vegna atvinnuviðtals á Íslandi. Fékk starfið, kom aftur til Dk, var þar í 6 daga og kom aftur til Íslands í fyrradag. Byrjaði svo í dag í nýja starfinu mínu sem fjármálastjóri Norræna hússins. Mér líst rosalega vel á starfið og starfsfólkið og hlakka gríðarlega mikið til að sinna þessu.Rétt í þessu var ég svo að bóka flug fyrir Jóa og börnin heim til Íslands þann 4.júlí. Þau flytja s.s. heim þá og þá erum við öll al-komin til Íslands :) Það er því í nógu að snúast þessa dagana. Ég náði að segja upp öllu því helsta í Danmörku áður en ég kom til Íslands og þarf Jói því aðallega að pakka niður, henda í gám og ganga frá húsinu ásamt því að vera með fjögur börn og hund..... Já, fjögur börn - Hjördís Þöll er komin út, kom með sömu vél og ég flaug heim og er því Jóa stoð og stytta í öllu umrótinu. Ég er á fullu að leita að íbúðum til leigu hérna á Íslandi og ef einhver veit um 5 herbergja íbúð/hús til leigu þá má hinn sami senda mér mail á thorunnr@gmail.com. Þurfum að negla húsnæði sem allra fyrst því það þarf að sjálfsögðu að skrá börnin í skóla og leikskóla. Við þurfum svo væntanlega að níðast á vinum og ættingjum þangað til gámurinn kemur til landsins og þar til við fáum húsnæði afhent.
En já, þá er afskaplega skemmtilegum kafla í lífi okkar að ljúka. Við erum búin að eiga frábæra og yndislega tíma í Danaveldi og við eigum aldrei eftir að gleyma þessum rúmum tveimur árum. Komum heim með fullt af dýrmætri reynslu og lærdómi sem við getum vonandi nýtt okkur á Íslandi. Við erum líka búin að eignast frábæra vini og mynda vináttu sem á pottþétt eftir að endast um aldur og ævi.
Við erum líka ofsalega glöð með að vera að flytja til Íslands. Ferðin sem átti bara að endast í tvö ár entist í tvö og hálft ár og það voru allir fjölskyldumeðlimir (ég sérstaklega) tilbúnir að flytja heim aftur :)
Hlakka til að hitta ykkur öll í kaffi og kleinum á Klakanum - bæði ykkur sem búið í Danmörku og ykkur sem eruð á Íslandi :)
Kveðja, Þórunn
PS. Íslenska símanúmerið mitt er 822-7649.
Long time...Tútta
Já við erum enn á lífi! Það er orðið svo langt síðan síðast að ég var búin að gleyma lykilorðinu inn á þennan blessaða vef. Frá því í síðustu færslu (fyrir rúmum mánuði) hefur nú ansi margt og mikið gerst.Við Hildur Brynja skelltum okkur í 9 daga heimsókn til Íslands, fengum ömmu og afa knús, KFC og íslenskt rok beint í æð :) Höfðum það aðeins of gott og vorum eiginlega hálf sorgmæddar að kveðja Klakann. Sem leiðir okkur að stóru fréttunum....tataratatammm.... VIÐ ÆTLUM AÐ FLYTJA TIL ÍSLANDS Í ÁGÚST!!!!! Búið að taka ákvörðun, ætlum að flytja til Íslands og sýna kreppunni í tvo heimana :) Erum búin að segja börnunum það og þau eru bara býsna spennt. Vinirnir eru ekki alveg jafn spenntir reyndar. Nú erum við því bara á fullu í að gera allt sem gera þarf, búin að segja upp leigunni og tilkynna skólum og leikskóla, búin að segja upp líkamsræktarkortunum og þá eru bara ca. 500 atriði eftir........
Börnin blómstra annars eins og áður. Heiðrún Ósk er alltaf jafn glöð og henni gengur rosa vel í skólanum. Á meðan ég var á Íslandi fór Jói í foreldrasamtal þar sem kom í ljós að hún stendur sig rosa vel og er líka svona ofsalega vinsæl. Greyið þarf víst að díla við það á hverjum degi að það er verið að rífast um hana - þ.e. hver fær að leika við hana! Sigurði Ragnari gengur líka vel og er brátt búinn með sex ára bekkinn (hann sem er bara nýfæddur). Hann fékk rör í eyrun um daginn og við erum strax farin að merkja mun á talinu hans. Hann var nefnilega orðinn hálf heyrnalaus vegna vökva í eyrunum og var það farið að bitna ansi mikið á tvítyngda drengnum.
Hildur Brynja er að verða þriggja ára á morgun! Dagurinn í dag hefur farið í tiltekt, þrif og bakstur auk þess sem ég er búin að vera að pakka inn gjöfum handa henni og Jói að setja saman hjól sem hún fær frá okkur. Í fyrramálið fær hún s.s. beint í rúmið tvo pakka frá systkinum sínum, pakka frá Rebekku frænku, pakka frá langömmu og langafa og pakka frá ömmu Guggu og Ragga afa. Þegar hún fer niður að borða morgunmatinn bíður hennar svo tvíhjól frá okkur Jóa. Vááá hvað verður gaman að sjá viðbrögðin hjá henni :) Afmælisveislan verður svo frá 11-14, í fyrra fallinu því við erum að fara í þrítugsafmæli annað kvöld og börnin verða í pössun. Hildur Brynja var svo spennt yfir komandi afmæli að hún sofnaði ekki fyrr en um 22 leytið í kvöld. Hún er samt alveg hörð á því að það eigi ekki að syngja afmælissönginn fyrir hana! Hún hefur nefnilega alltaf verið hálf smeyk við afmælissönginn, fer að væla og skríður í fangið á mömmu sinni þegar hún heyrir hann - krútt!
Ég ætla svo hvað og hverju að fara að skella inn nýjum myndum á Barnalandið, þetta er náttúrulega engin frammistaða hjá mér!
Þar til næst,
Þórunn
Ströndin - dýragarður - sirkusTútta
Það rættist aldeilis úr páskunum eftir mikinn veikindakafla. Á föstudaginn langa voru allir orðnir nokkuð hressir og fórum við þá í túr niður að strönd, mokuðum sand og hentum steinum í sjóinn. Um kvöldið komu Elva, Lýður og börn í mat. Á páskadag voru páskaeggin falin og fundin og borðuð - allt á mettíma og var páskaeggjaáti lokið kl. ca. 08:00 um morguninn. Um kvöldið grilluðum við al-íslenskt lambalæri sem við vorum búin að varðveita eins og fjársjóð í frystinum. Á mánudeginum fórum við svo í dýragarðinn í Álaborg og tókum Julie bekkjarsystur hennar Heiðrúnar með. Rosa gaman og huggulegt :)Svo tók bara við rútína og ný skólavika með öllu tilheyrandi. Sigurður Ragnar byrjaði að æfa fótbolta síðastliðinn föstudag og þykist hafa áhuga á því núna. Hann segir sko að hann hafi hætt síðast af því að þá var hann "bara fimm ára" en nú sé hann sko orðinn "hálfsjö ára" og miklu betri í fótbolta. Er á meðan er, við höldum allavega áfram að fara með hann þangað til hann missir áhugann - ef það gerist. Í gær sátum við svo úti allan daginn og sleiktum sólina, geðsjúkt veður og allir orðnir sólbrúnir og sællegir. Í dag var sko komið að því sem börnin eru búin að bíða eftir ansi lengi - jú ferð í Sirkus Arena!!! Það voru því þrjú ansi spennt og glöð börn sem héldu af stað í sirkus með foreldrum sínum og horfðu á fimleikaatriði, fíla, hesta, trúða og ýmislegt annað í rúma tvo klukkutíma. Þau eru svoooo ánægð með þetta að þau eru enn brosandi allan hringinn. Hildur Brynja var að vísu ansi smeyk við trúðana og kúrði sig lengst inn í mömmufang á meðan þeir voru að ærslast en hún hafði mikinn áhuga á öllu hinu. Semsagt - mikið stuð búið að vera hér undanfarna daga!
Nú og þá snúum við okkur að veðurfréttum (ég var að lesa yfir gamlar færslur og sá að ég tala nánast alltaf um veðrið) :) Veðrið undanfarnar tvær vikur er náttúrulega bara búið að vera guðdómlegt! Maður situr úti í hlírabol dag eftir dag og mér sýnist á veðurspánni að það sé ekkert lát á. Bryndís systir kemur eftir rúma viku og við krossum putta að veðurguðinn verði góður við hana svo hún haldi ekki að við séum bara að plata :)
Annars er bara rútínuvika að byrja á morgun; skóli, íslenskuskóli, skátar, fótbolti, tannlæknaheimsóknir, klipping, barnaafmæli, tiltektardagur á leikskólanum og jú auðvitað kosningar. Maður verður víst að leita uppi ræðismanninn í Árósum og henda inn atkvæði hjá honum - hvað verður kosið er enn óráðið, ætli það verði ekki bara ugla sat á kvisti? Jói er að fara í tvö próf á föstudaginn og eitt á mánudaginn þar á eftir þannig að hann er "out of household" rétt á meðan en við ættum að geta lifað það af :)
Og enn halda veikindin áfram...Tútta
Jói er orðinn nokkuð hress - svona miðað við hvað þetta var svakaleg flensa sem hann náði sér í. Sigurður Ragnar er orðinn góður, varð aldrei alvarlega veikur, fékk ekki hita - bara smá eyrnabólgu og kvef. Hildur Brynja veiktist hins vegar í fyrradag, var allt í einu komin með bullandi hita og slöpp. Hún er enn lasin. Heiðrún Ósk byrjaði svo seinni partinn í dag að vera slöpp og sýndi mælirinn rétt í þessu 39,5°. Þetta ætlar semsagt engan endi að taka. Ég er búin að vera hress sem fress, var slöpp einn dag og með einhvern smá hitaslæðing en annars er ég búin að vera í hjúkkuhlutverkinu að færa vatn í rúm og elda hollan mat handa sjúklingunum.
Páskafríið er s.s. aðeins öðruvísi en það átti að vera. Við erum bara búin að vera límd inni og höfum lítið geta notið rjómablíðunnar sem er búin að vera. Þurfum þó varla að örvænta því næstu fimm daga á að vera léttskýjað og upp í 20 stiga hita. Vonandi verða allir orðnir frískir á páskadag því einhver þarf að borða páskaeggin sex sem standa upp á skáp og freista húsmóðurinnar :)
Hildur Brynja er alveg að slá í gegn þessa dagana. Bæði með prumpufýlu-bröndurunum sínum og ansi fjörugu ímyndunarafli. Í gær fengum við nýja uppþvottavél og komu hér þrír iðnaðarmenn að tengja þá nýju og taka gömlu burt. Þeir voru ansi jötunmannlegir og það voru rosaleg læti í þeim. Hildur Brynja fylgdist með þeim þar til einn tók upp borvél. Þá kom hún grátandi til mín og hvíslaði með skelfingarsvip "Þeir ætla að ðkjóta okkur", svo lækkaði hún róminn enn frekar og bætti við "Og ðvo ætla þeir að borða okkur". Ég þurfti að sitja með aumingja barnið inni í stofu á meðan mennirnir kláruðu því hún skalf af hræðslu litla skinnið. Í dag var hún að syngja á fullu og textinn við lagið var nokkurn veginn svona: "mamma mín er kúkafýla, ég er prumpufýla og Nína er pissufýla - la la la la la, pabbi minn er Heiðrún og ég er líka ðtór". Frumlegt eða hvað?
Í hádeginu á morgun, skírdag, förum við í hangikjet til Hjöddu og Palla. Var að tala við Hjöddu rétt í þessu og við vorum að ræða hvað það verður furðulegt að borða hangikjetið og setjast svo út í sólbað - eitthvað sem maður á ekki alveg að venjast :) En issss, maður getur nú alveg vanið sig á svona hluti.....
Bless í bili.
PåskeferieTútta
Jæja ég hefði heldur betur ekki átt að monta mig yfir veðrinu í gær. Þeir breyttu snarlega veðurspánni og það á að fara að rigna á þriðjudaginn. Á morgun og hinn á að vera hlýtt en skýjað. Við náðum samt í rassinn á sólinni í dag og í gær og erum því komin með nokkrar freknur til að lífga upp á lífið og tilveruna.
Annars eru heldur betur veikindapestir að herja á okkur núna. Jói er búinn að liggja frá því á miðvikudag og er ennþá alveg frá. Skv. mælinum í morgun var hann með 39 stiga hita og er bara búinn að versna síðan. Sigurður Ragnar svaf varla dúr í nótt fyrir verk í eyrunum en sofnaði loks rúmlega fjögur þegar búið var að springa fyrir í öðru eyranu og vökvinn náði að komast út. Hann fékk leyfi til að kíkja í barnaafmæli í dag sökum rjómablíðu og vegna þess að hann var hitalaus en er búinn að vera ósköp slappur frá því hann kom heim og sefur núna í sófanum kófsveittur.
Páskarnir verða bara ósköp rólegir hjá okkur, engir gestir væntanlegir og við ekki á leið neitt. Við verðum með hana Nínu í pössun yfir páskana þar sem Jóhanna ýr og Halldór fara til Íslands og verða því allnokkrir göngutúrar teknir og svo er stefnan bara sett á mikið át og rólegheit.
Heiðrún Ósk er hálf vængbrotin þar sem flestir vinir hennar eru í einhverju ferðalagi yfir páskana þannig að við ætlum að reyna að finna einhverja afþreyingu fyrir hana. Hin tvö eru bara sátt með leikfélagana hérna í götunni og ættu því að hafa nóg að gera. Vonandi breyta veðurfræðingarnir aftur veðurspánni og taka út þessa rigningu!
Jæja, þarf að hjúkra sjúklingunum mínum, ætla að henda eins og einni frosinni pitsu í ofninn :)
Gleðilega páska!
VeðurmontTútta
Varð bara að koma með nokkrar línur til að segja frá því að í dag sat ég úti í sólbaði á hlírabol og var að kafna úr hita! Næstu daga er spáð heiðskíru og upp í 17 stiga hita....17 STIGA HITA!!! Í tilefni af góðri veðurspá tók ég garðinn í gegn í dag, skrúbbaði veröndina með sápu og þreif garðhúsgögnin því þau verða notuð í páskafríinu :)Ohhh það er svo dejligt að búa í Danmörku....á vorin..... :)
Sjálfstæð börnTútta
Það er eitthvað lítið um að vera hérna inni en engar fréttir eru jú, góðar fréttir :)
Börnin eru sífellt að verða sjálfstæðari og er ég orðin ansi meðvituð um að bráðum á ég bara unglinga sem ég þarf ekkert að hugsa um...tja eða jú kannski hugsa um en þeir klæða sig vonandi sjálfir og svona. Heiðrún Ósk fór síðustu helgi í fyrstu "útileguna" sína án foreldra. Hún fór með fimleikahópnum sínum í æfingaferð til Rørth sem er ca hálftíma akstur frá Århus. Þær fóru á laugardagsmorgni og komu aftur á sunnudegi. Hún skemmti sér alveg konunglega og fannst ansi fullorðins að vera svona án foreldrana og sofa í svefnpoka með vinkonum sínum. Sigurður Ragnar blómstrar alveg þessa dagana, það fer honum bara býsna vel að búa í Danmörku! Hann á yfirdrifið nóg af vinum, gengur vel í skólanum og er hress og kátur alla daga. Hann fór í sund með hóp úr frístundaheimilinu í dag og skemmti sér að sjálfsögðu frábærlega enda er hann algjör sundkonungur. Hildur Brynja hefur það líka rosa gott. Hún fílar leikskólann sinn alveg í tætlur og hlakkar til að fara þangað á hverjum degi. Hún er farin að vera bleiulaus hérna heima og á leikskólanum en þegar hún sefur og fer út að leika þá fær hún bleiu. Allt í þróun semsagt og vonandi verður bleian alveg farin fyrir þriggja ára afmælið.
Þessa dagana erum við með hana Nínu í heimsókn. Nína er hundur sem Jóhanna Ýr og Halldór eiga og hún er aaaalgjört krútt. Hún fer sennilega aftur heim á morgun en við fáum hana aftur yfir páskana þegar þau skötuhjú fara til Íslands. Börnin eru alveg einstaklega hrifin af því að fá að passa hund og hérna hljómar nafnið hennar "Nína" í stereo allan sólarhringinn!
Páskarnir já, þeir eru á næsta leiti. Það er ekkert skipulagt hjá okkur nema bara að hafa það huggulegt og slaka á. Stefnum jafnvel á bíltúra um Danmörku aðeins ef veður og bíll leyfa. Tengdó sendi páskaegg handa börnunum sem bárust með póstinum áðan. Börnin eru svo sniðug að þau eru búin að plata okkur til að kaupa dönsk páskaegg líka því "þau verða að smakka þau líka".....
Jóa gengur alveg brilliant í náminu sínu og stefnir bara í það að fá langtum hærri einkunnir en frúin á heimilinu! Ég kenni bara meðgöngu-fæðingar- og brjóstaþoku um......
Ég er svo bara í því að sækja um störf þessa dagana. Það er svo sem nóg framboð hérna í Danmörku en ansi mikið vesen að sækja um því umsóknirnar þurfa að vera svo svakalega vandaðar og allt öðru vísi ferli heldur en á Íslandi. Svo spillir líka svolítið fyrir að það fer allt fram á dönsku sem gerir ferlið svona 200% lengra í yfirferð. En þetta hefst allt saman og fyrr en varir verð ég farin að vinna og að kvarta yfir því að hafa ekki fengið "lengra frí" :)
Veðrið er búið að vera guðdómlegt. Sól og blár himinn og 10 stiga hiti. Ekki amalegt og hefur maður, með góðum vilja, getað sest aðeins út í sólbað (í flíspeysu samt). Eitthvað á veðurguðinn samt erfitt með að ákveða sig því það er spáð snjókomu hér í næstu viku! Vonum bara að það rætist ekki....
That´s it, yfir og út!
VesturströndinTútta
Við áttum alveg æðislega helgi. Fórum í bústað á Vesturströnd Jótlands ásamt Helga, Lóu og börnum. Lékum okkur þar alla helgina, bæði ungir sem aldnir. Meðal þess sem við gerðum var að fara í sund, spila fótbolta, fara á ströndina, fara á róló, spila og svo borða mikið mikið mikið.....
Hér koma nokkrar myndir úr ferðinni:







Það eru einnig komnar myndir á heimasíðu barnanna á Barnalandi frá febrúar og mars mánuði.
